Á morgun, miðvikudaginn 17. júlí ætla ég að reima á mig fjallvegahlaupaskóna á Borgarfirði eystri. Leiðin liggur frá Borgarfirði um Brúnavíkurskarð og Súluskarð niður í Kjólsvík, samtals um 12 km leið. Á fimmtudaginn er svo röðin komin að Stórurð annars vegar og Gönguskarði hins vegar.
Dagskrá tveggja næstu daga lítur í stuttu máli þannig út:
- Miðvikudagur 17. júlí 2019, kl. 13:00: Fjallvegahlaup nr. 54:
Brúnavíkurskarð og Súluskarð – Frá Ölduhamri í Borgarfirði eystri til Kjólsvíkur – 12 km. Þarna verða tveir fjallvegir sameinaðir í eitt hlaup (til að ná vegalengdinni upp fyrir 9 km, sem er lágmarksvegalengd samkvæmt afar ströngum reglum fjallvegahlaupaverkefnisins). - Fimmtudagur 18. júlí 2019, kl. 9:00: Fjallvegahlaup nr. 55:
Stórurð – Frá Hólalandi í Borgarfirði eystri að Unaósi á Héraði – 22 km. Þetta er reyndar líklega bara að hluta til gömul þjóðleið, en sú leið lá frá Hólalandi um Eiríksdal að Hrafnabjörgum við Selfljót. Þessi útfærsla hentar bara betur af því að hún er svo vel troðin og merkt. - Fimmtudagur 18. júlí 2019, kl. 14:00: Fjallvegahlaup nr. 56:
Gönguskarð – Frá Unaósi á Héraði að Hlíðartúni í Njarðvík – 10 km. Þarna býr sagan við hvert fótmál, m.a. í Stapavík, og staðsetningin gerir það að verkum að einkar hentugt er að hlaupa þessa leið í beinu framhaldi af Stórurð.
Samkvæmt upphaflegri fjallvegahlaupadagskrá ætlaði ég að hlaupa Sandaskörð þriðjudaginn 23. júlí nk., en því hlaupi þarf ég að fresta um óákveðinn tíma. Leiðin um Sandaskörð liggur frá Hólalandi í Borgarfirði eystri að Ánastöðum í Hjaltastaðaþinghá.
Drög að leiðarlýsingum fyrir Brúnavíkurskarð og Súluskarð annars vegar og Gönguskarð hins vegar má finna hér á síðunni, en leiðarlýsing um Stórurð hefur ekki enn verið skrifuð.
Vonandi slást sem flestir í för með mér næstu daga. Allir eru að vanda velkomnir á eigin ábyrgð, þátttakan kostar ekki neitt og engin verðlaun verða veitt, nema vonandi góðar minningar.
Rétt er að benda sérstaklega á að hið einstaka Dyrfjallahlaup fer fram á laugardaginn í þriðja sinn. Fjallvegahlaupin sem hér um ræðir eru tilvalin undirbúningur fyrir það, auk þess sem hlaupið um Stórurð nýtist að hluta sem brautarskoðun. Frestur til að skrá sig í Dyrfjallahlaupið rennur út á föstudag.
Myndin sem fylgir þessari færslu var tekin á Þrándarhrygg 26. júní 2010 í fjallvegahlaupi nr. 16. Þann dag hlupum við fjögur saman yfir Gagnheiði frá Borgarfirði eystri til Breiðuvíkur. Á myndinni sést einmitt niður í Brúnavík, þangað sem leiðin liggur á morgun.

Á laugardaginn (18. maí) hefst fjallvegahlaupavertíð sumarsins með sérstöku fjallvegahlaupabókarhlaupi um Skarðsheiðarveg sunnan af Skorholtsmelum í Melasveit upp í Hreppslaug í Andakíl. Þetta er sama leiðin og ég hljóp með góðum félögum þann 21. júní 2011, en því ferðalagi er lýst í 



Leitin að fjallvegum gengur vel. Ég ákvað í sumar að hlaupa 50 slíka fyrir sjötugsafmælið, til viðbótar við þá 50 sem voru afgreiddir á sextugsaldrinum. Þegar sú ákvörðun var tekin vissi ég um rúmlega 30 leiðir sem biðu þess að vera hlaupnar. Síðustu daga og vikur hefur listinn lengst jafnt og þétt og nú eru samtals 83 leiðir komnar á blað. Þó á ég eftir að kanna hluta af Norðurlandinu betur. Það er sem sagt til nóg af fjallvegum á Íslandi!
Á sunnudaginn (11. júní) ætla ég að hlaupa yfir Sælingsdalsheiði úr Saurbæ í Dölum að Laugum í Sælingsdal. Reikna með að leggja af stað úr Saurbænum kl. 13:00 og vonast til að sem flestir sláist í för með mér. Vegalengdin er um 15 km og hæst fer leiðin í um 400 m.y.s. Þátttakan kostar ekkert nema fyrirhöfnina við að koma sér á staðinn og heim aftur.
Nú er komið að því! Laugardaginn 20. maí kl. 10 árdegis verður lagt upp í fyrsta fjallvegahlaup sumarsins, yfir Svínaskarð, frá Hrafnhólum við Leirvogsá að Vindáshlíð í Kjós. Og þetta verður ekki bara fjallvegahlaup, heldur líka sérstakt fjallvegahlaupabókarhlaup. Í lok hlaupsins verður nefnilega efnt til samkomu í Vindáshlíð, þar sem bókin 