Þegar þetta er skrifað hef ég hlaupið 97 fjallvegi frá því að Fjallvegahlaupaverkefnið hófst sumarið 2007. Þrír síðustu fjallvegirnir verða hlaupnir á næstu sjö dögum – og þar með lýkur þessari 20 ára vegferð. Dagskrá þessara síðustu daga er sem hér segir:
- Sunnudag 2. ágúst kl. 10:00:
Húksleið frá Brandagili í Hrútafirði að Húki í Miðfirði (um 9 km). - Miðvikudag 5. ágúst kl. 14:00:
Fagranesskarð, þvert yfir Langanesið frá Hlíð í Þistilfirði að Fagranesi við Bakkaflóa (um 11 km). - Laugardag 8. ágúst kl. 10:00:
Heljardalsheiði frá Laufskálarétt í Hjaltadal að Atlastöðum í Svarfaðardal (um 26 km).
(ATH: Breyttur upphafsstaður og vegalengd)!
Hlaupið yfir Heljardalsheiði verður sem sagt 100. fjallvegahlaupið frá upphafi – og að hlaupi loknu verður þeim tímamótum fagnað á Dalvík.
Eins og áður er öllum velkomið að hlaupa þessa fjallvegi með mér – á eigin ábyrgð.
