• Um
  • Hlaupasögur 2007-2016
    • Laxárdalsheiði
    • Svínaskarð
    • Skarðsheiðarvegur
    • Skálavíkurheiði
    • Þingmannavegur
  • Hlaupasögur 2017-2026
    • Sælingsdalsheiði
    • Bæjardalsheiði
    • Reykjadalur-Sanddalur
    • Brúnavíkurskarð og Súluskarð
    • Gönguskarð í Eyjafirði
    • Siglufjarðarskarð
    • Kálfsskarð
    • Vatnadalur
    • Sandsheiði
    • Hnjótsheiði
    • Tunguheiði við Örlygshöfn
    • Breiðuvíkurháls
    • Tunguheiði við Tálknafjörð
    • Kollabúðaheiði
    • Hjálpleysa
    • Víkurheiði og Dys
    • Sandvíkurskarð
    • Gerpisskarð
    • Fjallsselsvegur
    • Aðalbólsvegur
    • Dalaskarð
    • Strjúgsskarð og Litla-Vatnsskarð
    • Gyltuskarð
    • Hesteyrarskarð
    • Tunguheiði í Sléttuhreppi
    • Háaheiði
    • Kjaransvíkurskarð
    • Skötufjarðarheiði
    • Eyrarfjall
    • Mosar
    • Klúkuheiði
    • Hellisheiði
    • Marðarnúpsfjall
    • Gönguskarð við Njarðvík
    • Sandaskörð
    • Stöðvarskarð
    • Gunnarsskarð
    • Flateyjardalsheiði
    • Gönguskarð í Kinnarfjöllum
    • Tröllatunguheiði
    • Bjarnarfjarðarháls
    • Lyngdalsheiði
    • Breiðadalsheiði
    • Hrafnseyrarheiði
    • Heiðarskarð
    • Ketuvegur
    • Ólafsfjarðarskarð
    • Húksleið
    • Fagranesskarð
    • Heljardalsheiði
  • Næstu hlaup
  • Hugmyndir
    • Hólmavatnsheiði
    • Skeggaxlarskarð
    • Sölvamannagötur
    • Kaldidalur
    • Þorleifsskarð
    • Króardalsskarð
    • Karlskálaskarð
    • Kerlingaháls
    • Kækjuskörð
    • Tó
    • Dalverpi
  • Tölfræði

Fjallvegahlaup Stefáns

Fjallvegahlaup Stefáns

Mánaðarskipt greinasafn: júlí 2026

Norðurland í næstu viku

21 Þriðjudagur Júl 2026

Posted by stefangisla in Óflokkað

≈ Skrá ummæli

Á leið úr Fljótum upp í Siglufjarðarskarð í júní 2020.

Fjallvegahlaup nr. 96 og 97 verða að öllu forfallalausu hlaupin á Norðurlandi í næstu viku. Dagskráin er sem hér segir, með fyrirvara um breytingar:

  1. Miðvikudagur 29. júlí kl. 10:00:
    Ketuvegur yfir Skagaheiði frá Steinnýjarstöðum utan við Skagaströnd að Ketu á Skaga (um 23 km)
  2. Fimmtudagur 30. júlí kl. 10:00: 
    Ólafsfjarðarskarð frá Ketilási í Fljótum að Kvíabekk í Ólafsfirði (um 16 km)
    (Upphaflega var ætlunin að leggja af stað úr Ólafsfirði, en líklega verða höfð endaskipti á ferðalaginu þannig að það hefjist Fljótamegin. Endanleg ákvörðun um þetta verður tekin með hliðsjón af veðurspá þegar nær dregur).

Að þessum hlaupum loknum verður stefnan væntanlega tekin á Langanes til að hlaupa yfir Fagranesskarð. Endanleg tímasetning verður kynnt fljótlega hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins. Sama gildir um breytingar sem kunna að verða á þessum áætlunum.

Að vanda er öllum velkomið að slást í för með mér á eigin ábyrgð. Þátttakan kostar ekki neitt nema fyrirhöfnina og engrar skráningar er krafist. Hins vegar er gott að láta vita af hugsanlegri þátttöku til að auðveldara verði að hópast í bíla.

Vonast til að sjá sem flest ykkar fyrir norðan.

Breytt Vestfjarðaáætlun

11 Laugardagur Júl 2026

Posted by stefangisla in Óflokkað

≈ Skrá ummæli

Óshólaviti 17. júlí 2016. Ljósm. SG.

Ég þarf að gera eina breytingu á fjallvegahlaupaplaninu fyrir næstu viku, þ.e. að færa Heiðarskarð frá sunnudegi til laugardags. Endurskoðuð áætlun lítur því svona út:

  1. Fimmtudagur 16. júlí kl. 10:00: Breiðadalsheiði
    Gamli bílvegurinn frá Skutulsfirði til Önundarfjarðar (um 16 km)
    Lagt af stað við vegamót Skutlsfjarðarbrautar og Vestfjarðavegar, rétt hjá Bónusi
  2. Föstudagur 17. júlí kl. 10:00: Hrafnseyrarheiði
    Gamli bílvegurinn frá Hrafnseyri til Þingeyrar (um 17 km)
    Lagt af stað frá vegamótum við Hrafnseyri, um 14 km vestan við syðri enda Dýrafjarðarganga
  3. Laugardagur 18. júlí kl. 10:00: Heiðarskarð
    Frá Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík til Hnífsdals (11,2 km)
    Lagt af stað frá stöðvarhúsi Reiðhjallavirkjunar, tæpum 5 km innan við þjóðveginn innst í Bolungarvík.
    (Ath.: Breytt dagsetning)

Þessi breyting hefur vissulega þann galla að nú rekst hlaupið yfir Heiðarskarð á við Vesturgötuna. Vonandi kemur það sér ekki mjög illa.

Ef frekari breytingar verða, verða þær kynntar hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins.

(Uppfært 13. júlí 2026 með tengli og leiðréttri vegalengd fyrir Breiðadalsheiði)

Allt á áætlun fyrir vestan

10 Föstudagur Júl 2026

Posted by stefangisla in Óflokkað

≈ Skrá ummæli

Í Önundarfirði sumarið 2024. (Ljósm. Björk Jóhannsd.).

Nú styttist í fjallvegahlaupin þrjú á Vestfjörðum. Svona lítur áætlunin út:

  1. Fimmtudagur 16. júlí kl. 10:00: Breiðadalsheiði
    Gamli bílvegurinn frá Skutulsfirði til Önundarfjarðar (um 12 km)
    Lagt af stað við vegamót Skutlsfjarðarbrautar og Vestfjarðavegar, rétt hjá Bónusi
  2. Föstudagur 17. júlí kl. 10:00: Hrafnseyrarheiði
    Gamli bílvegurinn frá Hrafnseyri til Þingeyrar (um 17 km)
    Lagt af stað frá vegamótum við Hrafnseyri, um 14 km vestan við syðri enda Dýrafjarðarganga
    (Ath.: Búið að hafa endaskipti á leiðinni)
  3. Sunnudagur 19. júlí kl. 10:00: Heiðarskarð
    Frá Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík til Hnífsdals (11,2 km)
    Lagt af stað frá stöðvarhúsi Reiðhjallavirkjunar, tæpum 5 km innan við þjóðveginn innst í Bolungarvík.

Nánari upplýsingar verða settar inn hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins þegar nær dregur. Þar verður líka tilkynnt um breytingar sem kunna að verða á áætluninni.

Hlaupin þrjú verða nr. 93, 94 og 95 af þessum 100 sem verða hlaupin í Fjallvegahlaupaverkefninu. Að vanda er öllum velkomið að slást í för með mér á eigin ábyrgð. Þátttakan kostar ekki neitt nema fyrirhöfnina og engrar skráningar er krafist. Hins vegar er gott að láta vita af hugsanlegri þátttöku til að auðveldara verði að hópast í bíla.

Vonast til að sjá sem flest ykkar fyrir vestan. Það vill líka svo til að Hlaupahátíð á Vestfjörðum stendur yfir þessa sömu daga. Vesturgatan verður til að mynda hlaupin á laugardeginum (18. júlí). Upplagt að nýta ferðina í það líka!

Veðurvaktin spáir ljómandi góðu veðri fyrir vestan þessa daga. Þau sem eru að hugsa um að taka þátt í þessum hlaupum eru hvött til að fylgjast með þróun veðurspár á https://www.blika.is. Skjáskotið hér að neðan er fengið að láni þar:

Skjámynd af https://www.blika.is/spa/37 10. júlí 2026 kl. 10:45.
júlí 2026
M F V F F S S
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  
« Jún   Ágú »

Blogg tölfræði

  • 41.211 hits

Bloggaðu hjá WordPress.com. eftir Ignacio Ricci.

Privacy & Cookies: This site uses cookies. By continuing to use this website, you agree to their use.
To find out more, including how to control cookies, see here: Cookie Policy
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Fjallvegahlaup Stefáns

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Fjallvegahlaup Stefáns
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
Hleð athugasemdir...