Óshólaviti 17. júlí 2016. Ljósm. SG.

Ég þarf að gera eina breytingu á fjallvegahlaupaplaninu fyrir næstu viku, þ.e. að færa Heiðarskarð frá sunnudegi til laugardags. Endurskoðuð áætlun lítur því svona út:

  1. Fimmtudagur 16. júlí kl. 10:00: Breiðadalsheiði
    Gamli bílvegurinn frá Skutulsfirði til Önundarfjarðar (um 16 km)
    Lagt af stað við vegamót Skutlsfjarðarbrautar og Vestfjarðavegar, rétt hjá Bónusi
  2. Föstudagur 17. júlí kl. 10:00: Hrafnseyrarheiði
    Gamli bílvegurinn frá Hrafnseyri til Þingeyrar (um 17 km)
    Lagt af stað frá vegamótum við Hrafnseyri, um 14 km vestan við syðri enda Dýrafjarðarganga
  3. Laugardagur 18. júlí kl. 10:00: Heiðarskarð
    Frá Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík til Hnífsdals (11,2 km)
    Lagt af stað frá stöðvarhúsi Reiðhjallavirkjunar, tæpum 5 km innan við þjóðveginn innst í Bolungarvík.
    (Ath.: Breytt dagsetning)

Þessi breyting hefur vissulega þann galla að nú rekst hlaupið yfir Heiðarskarð á við Vesturgötuna. Vonandi kemur það sér ekki mjög illa.

Ef frekari breytingar verða, verða þær kynntar hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins.

(Uppfært 13. júlí 2026 með tengli og leiðréttri vegalengd fyrir Breiðadalsheiði)