Í Önundarfirði sumarið 2024. (Ljósm. Björk Jóhannsd.).

Nú styttist í fjallvegahlaupin þrjú á Vestfjörðum. Svona lítur áætlunin út:

  1. Fimmtudagur 16. júlí kl. 10:00: Breiðadalsheiði
    Gamli bílvegurinn frá Skutulsfirði til Önundarfjarðar (um 12 km)
    Lagt af stað við vegamót Skutlsfjarðarbrautar og Vestfjarðavegar, rétt hjá Bónusi
  2. Föstudagur 17. júlí kl. 10:00: Hrafnseyrarheiði
    Gamli bílvegurinn frá Hrafnseyri til Þingeyrar (um 17 km)
    Lagt af stað frá vegamótum við Hrafnseyri, um 14 km vestan við syðri enda Dýrafjarðarganga
    (Ath.: Búið að hafa endaskipti á leiðinni)
  3. Sunnudagur 19. júlí kl. 10:00: Heiðarskarð
    Frá Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík til Hnífsdals (11,2 km)
    Lagt af stað frá stöðvarhúsi Reiðhjallavirkjunar, tæpum 5 km innan við þjóðveginn innst í Bolungarvík.

Nánari upplýsingar verða settar inn hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins þegar nær dregur. Þar verður líka tilkynnt um breytingar sem kunna að verða á áætluninni.

Hlaupin þrjú verða nr. 93, 94 og 95 af þessum 100 sem verða hlaupin í Fjallvegahlaupaverkefninu. Að vanda er öllum velkomið að slást í för með mér á eigin ábyrgð. Þátttakan kostar ekki neitt nema fyrirhöfnina og engrar skráningar er krafist. Hins vegar er gott að láta vita af hugsanlegri þátttöku til að auðveldara verði að hópast í bíla.

Vonast til að sjá sem flest ykkar fyrir vestan. Það vill líka svo til að Hlaupahátíð á Vestfjörðum stendur yfir þessa sömu daga. Vesturgatan verður til að mynda hlaupin á laugardeginum (18. júlí). Upplagt að nýta ferðina í það líka!

Veðurvaktin spáir ljómandi góðu veðri fyrir vestan þessa daga. Þau sem eru að hugsa um að taka þátt í þessum hlaupum eru hvött til að fylgjast með þróun veðurspár á https://www.blika.is. Skjáskotið hér að neðan er fengið að láni þar:

Skjámynd af https://www.blika.is/spa/37 10. júlí 2026 kl. 10:45.