Á Klofningsheiði fyrir vestan sumarið 2016. Ljósm. Sævar Skaptason.

Þetta síðasta fjallvegahlaupasumar hefur farið hægt af stað, þar sem meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Enn eru átta fjallvegir af 100 óhlaupnir og þessa fjallvegi þarf að afgreiða þrátt fyrir meiðslin. Þess vegna stefni ég að því að hlaupa eftirtaldar leiðir á Vestfjörðum upp úr miðjum júlí:

  1. Fimmtudag 16. júlí: Breiðadalsheiði
    Gamli bílvegurinn frá Skutulsfirði til Önundarfjarðar (um 12 km)
  2. Föstudag 17. júlí: Hrafnseyrarheiði
    Frá Þingeyri til Hrafnseyrar (um 17 km)
  3. Sunnudag 19. júlí: Heiðarskarð
    Úr miðbæ Bolungarvíkur til Ísafjarðar (um 18 km)

Leiðarvalið ber þess merki að aflagðir bílvegir hafa verið teknir framyfir hrjóstrugri heiðar. Það er gert til að draga úr hnjaski og auka líkur á að mér takist að ljúka verkinu í tæka tíð.

    Nánari upplýsingar verða settar inn hér og/eða á Facebooksíðu fjallvegahlaupaverkefnisins þegar nær dregur. Þar verður líka tilkynnt um breytingar sem kunna að verða á áætluninni.

    Að vanda er öllum velkomið að slást í för með mér á eigin ábyrgð. Þátttakan kostar ekki neitt nema fyrirhöfnina og engrar skráningar er krafist. Hins vegar er gott er að láta vita af hugsanlegri þátttöku til að auðveldara verði að hópast í bíla.

    Vonast til að sjá sem flest ykkar fyrir vestan. Það vill líka svo til að Hlaupahátíð á Vestfjörðum stendur yfir þessa sömu daga. Vesturgatan verður til að mynda hlaupin á laugardeginum (18. júlí). Upplagt að nýta ferðina í það líka!