Eins og fram hefur komið hefst 92. fjallvegahlaupið kl. 10 nk. laugardag, 9. maí. Leiðin liggur yfir Lyngdalsheiði eftir gamla Gjábakkaveginum frá Gjábakka í Þingvallasveit að Laugarvatni. Hér koma nokkur grundvallaratriði varðandi hlaupið:

  • Rúta fer frá Menntaskólanum á Laugarvatni (ML) (Skólatúni 1, 840 Laugarvatn) kl. 9:30 á laugardagsmorgninum að rásmarkinu við Gjábakka. Sá akstur tekur um 20 mín.
  • Fargjaldið er 3.500 kr/mann. Best er að greiða það í rútunni. Posi verður til reiðu á staðnum.
  • Hlaupið hefst við Gjábakka kl. 10. Upplýsingar um leiðina má finna á þar til gerðri síðu á þessum vef.
  • Hlaupaleiðin er um 16 km með um 260 m hækkun. Hlaupið er eftir gömlum malarvegi.
  • Hlaupið endar við ML.
  • Fontanaböðin á Laugarvatni eru lokuð til 1. júní vegna viðhalds og breytinga, en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Bláskógabyggðar opnar sundlaugin á staðnum kl. 10 á laugardögum.

Sjáumst glöð á laugardagsmorgun.