• Um
  • Hlaupasögur 2007-2016
    • Laxárdalsheiði
    • Svínaskarð
    • Skarðsheiðarvegur
    • Skálavíkurheiði
    • Þingmannavegur
  • Hlaupasögur 2017-2026
    • Sælingsdalsheiði
    • Bæjardalsheiði
    • Reykjadalur-Sanddalur
    • Brúnavíkurskarð og Súluskarð
    • Gönguskarð í Eyjafirði
    • Siglufjarðarskarð
    • Kálfsskarð
    • Vatnadalur
    • Sandsheiði
    • Hnjótsheiði
    • Tunguheiði við Örlygshöfn
    • Breiðuvíkurháls
    • Tunguheiði við Tálknafjörð
    • Kollabúðaheiði
    • Hjálpleysa
    • Víkurheiði og Dys
    • Sandvíkurskarð
    • Gerpisskarð
    • Fjallsselsvegur
    • Aðalbólsvegur
    • Dalaskarð
    • Strjúgsskarð og Litla-Vatnsskarð
    • Gyltuskarð
    • Hesteyrarskarð
    • Tunguheiði í Sléttuhreppi
    • Háaheiði
    • Kjaransvíkurskarð
    • Skötufjarðarheiði
    • Eyrarfjall
    • Mosar
    • Klúkuheiði
    • Hellisheiði
    • Marðarnúpsfjall
    • Gönguskarð við Njarðvík
    • Sandaskörð
    • Stöðvarskarð
    • Gunnarsskarð
    • Flateyjardalsheiði
    • Gönguskarð í Kinnarfjöllum
    • Tröllatunguheiði
    • Bjarnarfjarðarháls
    • Lyngdalsheiði
  • Næstu hlaup
  • Hlaupasögubrot
  • Hugmyndir
    • Hólmavatnsheiði
    • Ketuvegur
    • Ólafsfjarðarskarð
    • Skeggaxlarskarð
    • Sölvamannagötur
    • Kaldidalur
    • Þorleifsskarð
    • Króardalsskarð
    • Karlskálaskarð
    • Kerlingaháls
    • Kækjuskörð
    • Tó
    • Dalverpi
  • Tölfræði

Fjallvegahlaup Stefáns

Fjallvegahlaup Stefáns

Dagskipt greinasafn: 18. maí, 2026

Hlaupið fyrir norðan 6. og 7. júní

18 Mánudagur Maí 2026

Posted by stefangisla in Óflokkað

≈ Skrá ummæli

Í 580 m hæð í Hjálpleysudal inn af Reyðarfirði í júlí 2021. Þennan dag viðraði vel til fjallvegahlaupa.

Laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. júní stefni ég að því að hlaupa tvo fjallvegi á Norðurlandi vestra.

Fyrri daginn, þ.e.a.s. á laugardeginum, er ætlunin að hlaupa um Ketuveg yfir Skagaheiði, nánar tiltekið frá Steinnýjarstöðum utan við Skagaströnd að Ketu á Skaga. Þessi leið er um 23 km með lítilli hækkun, þar sem leiðin fer hæst í u.þ.b. 200 m.y.s. Undirlagið er misgott, en víða mun hægt að fylgja sæmilegum jeppaslóðum sem veiðimenn nota til að komast að einhverjum þeirra u.þ.b. 40 veiðivatna sem finna má á heiðinni. Annars staðar er leiðin seinfarnari, og lítið um kennileiti. Þar við bætast svo „viðsjárverð veður, algeng þoka með tilheyrandi villuhættu, draugar og skrímsli“. Stefnt er að brottför frá Steinnýjarstöðum um kl. 11.

Síðari daginn, þ.e.a.s. á sunnudeginum, er stefnan tekin á Ólafsfjarðarskarð, frá Þverá í Ólafsfirði að Ketilási í Fljótum. Þessi leið er um 16 km með töluverðri hækkun, þar sem hæsti punktur er nálægt 740 m.y.s. Fyrsti spölurinn fylgir greinilegum vegarslóða inn Kvíabekkjardal, þar sem Hólabiskup rak á sínum tíma (1323-1331) spítala fyrir presta sem ekki voru vinnufærir vegna elli eða kulnunar í starfi. Leiðin er að öllum líkindum auðrötuð, en mögulega er snjór uppi í skarðinu og þegar niður er komið þarf að vaða á. Stefnt er að brottför frá Þverá um kl. 11.

Báðar leiðirnar voru á dagskrá fjallvegahlaupaverkefnisins sömu daga fyrir ári síðan, en þá var ferðalögum frestað vegna júníhrets sem gekk yfir Norðurland. Í þetta skipti ríkir hins vegar bjartsýni um gott veður og góða samveru glaðra fjallvegahlaupara. Öllum er velkomið að slást í hópinn á eigin ábyrgð. Engrar skráningar er krafist, en gott er að láta vita af hugsanlegri þátttöku til að auðveldara verði að hópast í bíla.

Vonast til að sjá sem flest ykkar fyrir norðan.

Upplýsingar um fjallvegahlaup sumarsins eru uppfærðar á Næstu hlaup jafnóðum og áformin skýrast.

    maí 2026
    M F V F F S S
     123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    « Jan    

    Blogg tölfræði

    • 38.661 hits

    Stofnaðu ókeypis vef eða blogg á WordPress.com. eftir Ignacio Ricci.

    Privacy & Cookies: This site uses cookies. By continuing to use this website, you agree to their use.
    To find out more, including how to control cookies, see here: Cookie Policy
    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Fjallvegahlaup Stefáns
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • Fjallvegahlaup Stefáns
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar

    Hleð athugasemdir...