• Um
  • Hlaupasögur 2007-2016
    • Laxárdalsheiði
    • Svínaskarð
    • Skarðsheiðarvegur
    • Skálavíkurheiði
    • Þingmannavegur
  • Hlaupasögur 2017-2026
    • Sælingsdalsheiði
    • Bæjardalsheiði
    • Reykjadalur-Sanddalur
    • Brúnavíkurskarð og Súluskarð
    • Gönguskarð í Eyjafirði
    • Siglufjarðarskarð
    • Kálfsskarð
    • Vatnadalur
    • Sandsheiði
    • Hnjótsheiði
    • Tunguheiði við Örlygshöfn
    • Breiðuvíkurháls
    • Tunguheiði við Tálknafjörð
    • Kollabúðaheiði
    • Hjálpleysa
    • Víkurheiði og Dys
    • Sandvíkurskarð
    • Gerpisskarð
    • Fjallsselsvegur
    • Aðalbólsvegur
    • Dalaskarð
    • Strjúgsskarð og Litla-Vatnsskarð
    • Gyltuskarð
    • Hesteyrarskarð
    • Tunguheiði í Sléttuhreppi
    • Háaheiði
    • Kjaransvíkurskarð
    • Skötufjarðarheiði
    • Eyrarfjall
    • Mosar
    • Klúkuheiði
    • Hellisheiði
    • Marðarnúpsfjall
    • Gönguskarð við Njarðvík
    • Sandaskörð
    • Stöðvarskarð
    • Gunnarsskarð
    • Flateyjardalsheiði
    • Gönguskarð í Kinnarfjöllum
    • Tröllatunguheiði
    • Bjarnarfjarðarháls
  • Næstu hlaup
  • Hlaupasögubrot
  • Hugmyndir
    • Hólmavatnsheiði
    • Ketuvegur
    • Lyngdalsheiði
    • Ólafsfjarðarskarð
    • Skeggaxlarskarð
    • Sölvamannagötur
    • Kaldidalur
    • Þorleifsskarð
    • Króardalsskarð
    • Karlskálaskarð
    • Kerlingaháls
    • Kækjuskörð
    • Tó
    • Dalverpi
  • Tölfræði

Fjallvegahlaup Stefáns

Fjallvegahlaup Stefáns

Dagskipt greinasafn: 5. maí, 2026

Lyngdalsheiði á laugardag

05 Þriðjudagur Maí 2026

Posted by stefangisla in Óflokkað

≈ Skrá ummæli

Fjallvegahlaupasumarið 2026 hefst nk. laugardag 9. maí nk. kl. 10:00 með hlaupi yfir Lyngdalsheiði, nánar tiltekið eftir gamla veginum frá Gjábakka í Þingvallasveit að Laugarvatni. Þetta er nokkurn veginn sama leið og hlaupin er í hinu árlega Bláskógaskokki, hækkunin hófleg (um 260 m) og hlaupið á greiðfærum malarvegi nánast alla leið. Nánari upplýsingar og skráning eru á þar til gerðum Facebook-viðburði. Skráningin er mikilvæg, þar sem hugsanlega verður efnt til uppákomu í lok hlaupsins, þar sem fjöldinn skiptir máli. Einnig standa yfir samningaviðræður um mögulegar sætaferðir í tengslum við hlaupið. Allt verður þetta kynnt nánar í umræðu á Facebook-viðburðinum.

Hlaupið yfir Lyngdalsheiði verður 92. hlaupið í fjallvegahlaupaverkefninu mínu. Stefnt er að því að fjallvegirnir verði orðnir 100 talsins fyrir árslok, enda er ný fjallvegahlaupabók frá bókaútgáfunni Sölku væntanleg í allar helstu bókabúðir í mars 2027. Þar verða frásagnir og myndir frá síðustu 50 hlaupunum (hlaupum nr. 51-100).

Að sjálfsögðu er öllum boðið að taka þátt í Lyngdalsheiðarhlaupinu. Vegalengdin er rétt um 10 mílur (um 16 km) og hraðinn verður bara sá sem flestum hentar. Fólk má t.d. alveg ganga þetta rösklega. Fjallvegahlaupin eru jú skemmtihlaup en ekki keppni. Og staðsetning hlaupsins gerir það að verkum að stór hluti þjóðarinnar ætti að eiga tiltölulega auðvelt með að koma sér á staðinn.

Þátttakan í hlaupinu kostar ekki neitt og þátttakendur fara þetta á eigin ábyrgð. Hlaupið er skipulagt í samstarfi við bókaútgáfuna Sölku og sem fyrr segir er mikilvægt að fólk skrái sig til þátttöku með því að merkja við „Going“ í viðeigandi Facebook-viðburði. Stefnan er að þetta verði góður dagur í góðum félagsskap og (næstum örugglega) í góðu veðri.

Fyrirspurnir sem varða hlaupið má senda á stefan@environice.is.

maí 2026
M F V F F S S
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
« Jan    

Blogg tölfræði

  • 38.440 hits

Stofnaðu ókeypis vef eða blogg á WordPress.com. eftir Ignacio Ricci.

Privacy & Cookies: This site uses cookies. By continuing to use this website, you agree to their use.
To find out more, including how to control cookies, see here: Cookie Policy
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    • Fjallvegahlaup Stefáns
    • Already have a WordPress.com account? Log in now.
    • Fjallvegahlaup Stefáns
    • Gerast áskrifandi Subscribed
    • Skrá mig
    • Innskráning
    • Report this content
    • Skoða vef í lesara
    • Manage subscriptions
    • Collapse this bar

Hleð athugasemdir...