Á morgun, miðvikudaginn 17. júlí ætla ég að reima á mig fjallvegahlaupaskóna á Borgarfirði eystri. Leiðin liggur frá Borgarfirði um Brúnavíkurskarð og Súluskarð niður í Kjólsvík, samtals um 12 km leið. Á fimmtudaginn er svo röðin komin að Stórurð annars vegar og Gönguskarði hins vegar.
Dagskrá tveggja næstu daga lítur í stuttu máli þannig út:
- Miðvikudagur 17. júlí 2019, kl. 13:00: Fjallvegahlaup nr. 54:
Brúnavíkurskarð og Súluskarð – Frá Ölduhamri í Borgarfirði eystri til Kjólsvíkur – 12 km. Þarna verða tveir fjallvegir sameinaðir í eitt hlaup (til að ná vegalengdinni upp fyrir 9 km, sem er lágmarksvegalengd samkvæmt afar ströngum reglum fjallvegahlaupaverkefnisins). - Fimmtudagur 18. júlí 2019, kl. 9:00: Fjallvegahlaup nr. 55:
Stórurð – Frá Hólalandi í Borgarfirði eystri að Unaósi á Héraði – 22 km. Þetta er reyndar líklega bara að hluta til gömul þjóðleið, en sú leið lá frá Hólalandi um Eiríksdal að Hrafnabjörgum við Selfljót. Þessi útfærsla hentar bara betur af því að hún er svo vel troðin og merkt. - Fimmtudagur 18. júlí 2019, kl. 14:00: Fjallvegahlaup nr. 56:
Gönguskarð – Frá Unaósi á Héraði að Hlíðartúni í Njarðvík – 10 km. Þarna býr sagan við hvert fótmál, m.a. í Stapavík, og staðsetningin gerir það að verkum að einkar hentugt er að hlaupa þessa leið í beinu framhaldi af Stórurð.
Samkvæmt upphaflegri fjallvegahlaupadagskrá ætlaði ég að hlaupa Sandaskörð þriðjudaginn 23. júlí nk., en því hlaupi þarf ég að fresta um óákveðinn tíma. Leiðin um Sandaskörð liggur frá Hólalandi í Borgarfirði eystri að Ánastöðum í Hjaltastaðaþinghá.
Drög að leiðarlýsingum fyrir Brúnavíkurskarð og Súluskarð annars vegar og Gönguskarð hins vegar má finna hér á síðunni, en leiðarlýsing um Stórurð hefur ekki enn verið skrifuð.
Vonandi slást sem flestir í för með mér næstu daga. Allir eru að vanda velkomnir á eigin ábyrgð, þátttakan kostar ekki neitt og engin verðlaun verða veitt, nema vonandi góðar minningar.
Rétt er að benda sérstaklega á að hið einstaka Dyrfjallahlaup fer fram á laugardaginn í þriðja sinn. Fjallvegahlaupin sem hér um ræðir eru tilvalin undirbúningur fyrir það, auk þess sem hlaupið um Stórurð nýtist að hluta sem brautarskoðun. Frestur til að skrá sig í Dyrfjallahlaupið rennur út á föstudag.
Myndin sem fylgir þessari færslu var tekin á Þrándarhrygg 26. júní 2010 í fjallvegahlaupi nr. 16. Þann dag hlupum við fjögur saman yfir Gagnheiði frá Borgarfirði eystri til Breiðuvíkur. Á myndinni sést einmitt niður í Brúnavík, þangað sem leiðin liggur á morgun.