Á morgun, laugardaginn 23. júlí, er komið að síðasta og lengsta fjallvegahlaupinu í fjallvegahlaupaverkefninu. Þá ætla ég að hlaupa yfir Arnarvatnsheiði úr Miðfirði suður í Borgarfjörð í góðra vina hópi.
Leiðin yfir Arnarvatnsheiði er um 81 km og því er nauðsynlegt að taka daginn snemma til að ná til byggða á skikkanlegum tíma. Með þetta í huga ætla ég að leggja af stað úr Miðfirði kl. 5 árdegis. Hlaupið hefst á vegamótum Miðfjarðarvegar og Arnarvatnsvegar autan við brúna yfir Núpsá, gegnt bænum á Haugi, þar sem Guðný föðursystir mín bjó um árabil með eiginmanni sínum og 10 börnum. Upphafspunkturinn er um 18 km innan við Laugarbakka.
Löngum hlaupum er skynsamlegt að skipta í styttri áfanga. Þess vegna verður hlaupinu á morgun áfangaskipt eins og sýnt er á meðfylgjandi korti sem við Sævar Skaptason hjálpuðumst að við að útbúa á dögunum. (Reyndar er rétt að taka fram að við teiknuðum ekki kortið sjálft. Við bættum bara inn nokkrum X-um á vel valda staði). Kortið er illlæsilegt eins og það lítur út hér á síðunni, en stærra kort birtist ef smellt er á myndina.
Hver áfangi í hlaupi morgundagsins er um 10 km að lengd, eða nánar tiltekið á bilinu 9-14 km. Fyrrnefndur Sævar Skaptason hefur komið því til leiðar að trússbíll verður okkur til halds og trausts alla leiðina og mun bíllinn m.a. gegna hlutverki drykkjarstöðvar við lok hvers áfanga. Taflan hér að neðan sýnir áfangaskiptinguna í smáatriðum, með fyrirvara um einhverja fínstillingu eftir aðstæðum á hverjum áningarstað. Taflan er ekki vel læsileg með venjulegum gleraugum en úr því rætist sé smellt á hana.
Í töflunni hér að framan er m.a. að finna áætlaðar tímasetningar á hverjum áfangastað. Þessar tímasetningar líta út fyrir að vera afar nákvæmar, en eru þó einungis settar fram til viðmiðunar. Ég geri ráð fyrir að meðalhraðinn yfir heiðina verði rétt um 6 km/klst, þ.e. röskur gönguhraði. Til þess að halda þeim hraða þarf að ljúka hverjum kílómetra á 10 mínútum. Tímaáætlun af þessu tagi er nauðsynleg í svona hlaupi, sérstaklega þegar haft er í huga að þegar hlaupinu lýkur verður haldið upp á fullkomnun fjallvegahlaupaverkefnisins með súpuveislu á Hótel Húsafelli. Þangað er öllum boðið sem tekið hafa þátt í verkefninu, þ.m.t. hlaupurum morgundagsins, enda hafi þeir boðað komu sína áður en veislan brestur á. (Þegar talað er um fullkomnun er hér átt við að verkefnið hafi verið fullkomnað, en ekki endilega að það hafi verið fullkomið (þó að hlutlaust mat mitt bendi til að svo hafi verið)).
Eins og staðan er þegar þetta er skrifað að morgni föstudags stefnir allt í að 10 manns hlaupi saman yfir heiðina á morgun. Sú þátttaka er langt umfram þær björtustu vonir sem ég hafði gert mér, enda vegalengdin tæpast við alþýðuskap. Ég geri líka ráð fyrir að fleira fólk sláist í hópinn á síðustu kílómetrunum. Eftir því sem ég best veit er vegurinn frá Kalmanstungu upp að Helluvaði á Norðlingafljóti fær öllum bílum, en þessi leið er um 20 km ef marka má töfluna hér að framan. Eins og sést á töflunni er ætlunin að ljúka hlaupinu kl. 18:30. Þeir sem vilja koma til móts við okkur geta reiknað tímasetningar út frá því, miðað við að hver km taki okkur 10 mín. að meðaltali.
Á morgun verður gaman!