Hugmyndir

Ónotaðar hugmyndir að fjallvegum

Hér er fjallvegum raðað eftir landshlutum (eftir því sem við verður komið) og eftir stafrófsröð innan landshluta. (Óhlaupnir fjallvegir sem þegar eru komnir á dagskrá eru tilgreindir á síðunni Næstu hlaup).

Suðurnes

  1. Þórustaðastígur – Frá Þórustöðum á Vatnsleysuströnd til Krísuvíkur – 21 km

Vesturland

  1. Fossavegur – Frá Dunkárbakka í Hörðudal að Hallkelsstaðahlíð – 18 km (til athugunar)
  2. Hólmavatnsheiði – frá Sólheimum í Laxárdal að Prestbakka í Hrútafirði – 18 km
  3. Jörfamúli – Frá Smyrlhóli í Haukadal að Fornahvammi í Norðurárdal – 23 km (til athugunar)
  4. Kaldidalur (F550) – Úr Lundareykjadal að Húsafelli – 40 km
  5. Rauðamelsheiði – Frá Höfða í Hnappadal að Gunnarsstöðum í Hörðudal – 24 km (til athugunar)
  6. Skeggaxlarskarð – Frá Laugum í Sælingsdal að Tindum á Skarðsströnd – 30 km
  7. Sölvamannagötur – Frá Markhöfða í Hrútafirði að Sólheimum í Laxárdal – 16 km

Vestfirðir

  1. Álftafjarðarheiði – Frá Seljalandi í Álftafirði að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði – 20 km
  2. Álftamýrarheiði – Frá Hólum í Dýrafirði til Arnarfjarðar – 16 km
  3. Bolungarvíkurheiði  – Frá Álfsstöðum í Hrafnsfirði Til Bolungarvíkur á Ströndum – 10 km
  4. Breiðadalsheiði – Milli Skutulsfjarðar og Önundarfjarðar – 12 km
  5. Dalverpi – Frá Keflavík að Sauðlauksdal – 14 km
  6. Fossheiði – Frá Tungumúla á Barðaströnd að Fossi í Arnarfirði – 14 km
  7. Grárófa – Úr Bolungarvík til Súgandafjarðar – 12 km
  8. Hafnarskarð Frá Hornvík í Veiðileysufjörð í Jökulfjörðum – 10 km
  9. Heiðarskarð – Frá miðbæ Ísafjarðar í miðbæ Bolungarvíkur – 18 km
  10. Kerlingaháls – Frá Saurbæ á Rauðasandi til Keflavíkur – 12 km
  11. Kollafjarðarheiði (F66) – Frá Fjarðarhorni í Kollafirði í Reykhólahreppi að Laugabóli í Ísafirði – 24 km
  12. Lambadalsskarð – Frá Seljalandi í Álftafirði að Lambadal í Dýrafirði – 19 km
  13. Látraheiði – Frá Hvallátrum til Keflavíkur – 12 km
  14. Lokinhamraheiði – Frá Hrafnabjörgum í Arnarfirði að Haukadal í Dýrafirði – 14 km
  15. Lækjarheiði – Frá Brjánslæk í Trostansfjörð – 15 km
  16. Ófeigsfjarðarheiði – Úr Ófeigsfirði að Laugalandi í Skjaldfannardal – 39 km
  17. Rangalaskarð – frá Rangala í Lónafirði til Hornvíkur – 13 km
  18. Snartartunguheiði – Frá Kleifum í Gilsfirði að Snartartungu í Bitru – 12 km
  19. Þorskafjarðarheiði – Frá Kirkjubóli í Langadal að Vestfjarðavegi á Ódrjúgshálsi – 41 km
  20. Þrengsli – Frá Barðsvík á Ströndum að Sópanda í Lónafirði – 11 km

Norðurland vestra

  1. Húksleið – Frá Brandagili í Hrútafirði að Húki í Miðfirði – 9 km
  2. Heljardalsheiði – Frá Hólum í Hjaltadal að Atlastöðum í Svarfaðardal – 27 km
  3. Hólamannavegur – Frá Hólum í Hjaltadal að Bugi í Hörgárdal – 39 km
  4. Hraunvatnsleið – Frá Skagaströnd að Borgarlæk á Skaga – 23 km
  5. Hrútafjarðarháls – Frá Þóroddsstöðum í Hrútafirði að Skarfshóli í Miðfirði – 11 km
  6. Ketuvegur – Frá Steinnýjarstöðum að Ketu á Skaga – 20 km
  7. Ólafsfjarðarskarð – Frá Ketilási í Fljótum að Þverá í Ólafsfirði – 16 km

Norðurland eystra

  1. Brekknaheiði (gömul póstleið) – Frá Jaðri við Þórshöfn til Finnafjarðar – 12 km
  2. Fagranesskarð – frá Hlíð í Þistilfirði að Fagranesi við Bakkaflóa – 11 km
  3. Hellugnúpsskarð – Frá Sörlastöðum í Fnjóskadal að Stóruvöllum í Bárðardal – 13 km
  4. Hróaldsstaðaheiði – Frá Melaseli í Þistilfirði að Hróaldsstöðum í Vopnafirði – 51 km
  5. Reykjaheiðarleið – Frá Heiðarbót í Reykjahverfi að Meiðavöllum í Kelduhverfi – 40 km
  6. Reykjahlíðarheiði – Frá Reykjahlíð að Kröflu – 10 km
  7. Snartarstaðaleið – Frá Kópaskeri að Raufarhöfn – 31 km
  8. Öxarfjarðarheiði (gömul þjóðleið) – Frá Flautafelli í Þistilfirði um Garðsdal og Einarsskarð að Gilsbakka í Öxarfirði – 36 km

Austurland

  1. Fljótsdalsheiði – Frá Klausturseli í Jökuldal að Bessastöðum í Fljótsdal – 29 km
  2. Fönn – Úr Slenjudal að Neðri-Skálateigi í Norðfirði – 23 km
  3. Hólaskarð – Úr botni Mjóafjarðar að Neðri-Skálateigi í Norðfirði – 20 km
  4. Klausturselsheiði – Frá Klausturseli í Jökuldal að Ormarsstöðum í Fellum – 34 km
  5. Króardalsskarð – Frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar – 11 km
  6. Kækjuskörð – Frá Þverárbrú í Borgarfirði að Stakkahlíð í Loðmundarfirði – 13 km
  7. Lónsheiði – Frá Össurá í Lóni að Krossvík í Álftafirði – 18 km
  8. Smjörvatnsheiði – Frá Fossvöllum í Jökulsárhlíð að Hrauni í Vopnafirði – 35 km
  9. Stórurð – Frá Hólalandi í Borgarfirði eystri að Unaósi á Héraði – 22 km
  10. – Frá Klyppstað í Loðmundarfirði að Gilsárteig í Eiðaþinghá – 24 km
  11. Vatnsdalur – Úr Breiðdal upp á Skriðdal – 19 km
  12. Vestdalsheiði – Frá Gilsárteig í Eiðaþinghá að Háubökkum í Seyðisfirði – 22 km

Suðurland

  1. Fimmvörðuháls – Frá Þórsmörk að Skógum  – 22 km
  2. Gagnheiði – Frá Svartagili í Þingvallasveit að Gilstreymi í Lundarreykjadal – 20 km
  3. Langalangafaleiðin – Frá Svartagili í Þingvallasveit að Hvammi í Vatnsdal – 178 km
  4. Lyngdalsheiði – Frá Gjábakka í Þingvallasveit til Laugarvatns – 16 km

2 athugasemdir við “Hugmyndir”

Færðu inn athugasemd