Ólafsfjarðarskarð

Staðsetning: Frá Þverá í Ólafsfirði að Ketilási í Fljótum
Hnattstaða:
Upphaf: 0,00 km, N66°00,55' - V18°46,79'
Ólafsfjarðarskarð: 6,20 km, N65°58,72' - V18°40,91' (740 m)
Ármót við Brúnastaðaá: 11,40 km, N66°02,37' - V18°57,56'
Lok: 16,00 km, N66°03,19' - V19°00,96'
Hæð y. sjó: x m við upphaf, 740 m hæst => Hækkun xxx m
Vegalengd: Áætluð um 16 km
Tími: x:xx:xx klst.
Meðalhraði: x,xx km/klst (xx:xx mín/km)
Dags.: Upphaflega áformað 7. júní 2025. Frestað vegna veðurs.
Hlaupafélagar: Vonandi sem flestir

Fróðleikur um leiðina:

Leiðin um Ólafsfjarðarskarð var fjölfarin fyrr á árum, enda póstleið á milli Ólafsfjarðar og Fljóta. Hlaupið hefst við eyðibýlið Þverá í Ólafsfirði, u.þ.b. 9 km innan við þéttbýlið í Ólafsfirði. Þaðan liggur greinilegur vegarslóði til vesturs meðfram Þverá inn Kvíabekkjardal og síðan til norðvesturs inn Skarðsdal.

Kvíabekkjardalur er nefndur eftir landnámsjörðinni Kvíabekk sem stendur neðst í dalnum. Þar var lengi sóknarkirkja Ólafsfirðinga, að öllum líkindum síðan á 12. öld. Þá var þar á árunum 1323-1331 rekinn spítali á vegum Hólabiskups „prestum ollum till vidrveriss þeim sem þrotna kunnu at elle edr krankleika. ok ei voru émbettiss férir“, eins og það er orðað í Íslenskum annálum. Á nútímamáli þýðir þetta væntanlega að spítalinn hafi verið ætlaður prestum sem ekki voru vinnufærir vegna elli eða kulnunar í starfi.

Sagt er að neðst í Kvíabekkjardal hafi fyrrum verið ein sjö afbýli, enda dalurinn svo vel gróinn að hann var jafnvel talinn 1.000 hestburða heyland. Ekki eru þó til heimildir um öll þessi býli. Nú stendur þar ekkert eftir nema tóftir, en við Þverá er jarðhiti og þar er verið að byggja upp sumarbústaðasvæði. Skarðið sjálft sést inn af dalnum í 740 m hæð milli hárra fjalla. Síðasti spölurinn upp í skarðið er snarbrattur en greiðfær að öðru leyti. Uppi í skarðinu er prýðisgott útsýni vestur til Fljóta, en þar fyrir vestan taka við aflíðandi brekkur niður í Ólafsfjarðardal inn úr Fljótum. Um 1,4 km vestan við skarðið (um 7,6 km frá upphafsstaðnum) liggur leið um Sandskarð áleiðis í Héðinsfjörð, en þangað er ferðinni ekki heitið að þessu sinni.

Leiðin niður Ólafsfjarðardal er greið og slóðin alls staðar greinileg meðfram Ólafsfjarðará að sunnanverðu (með ána á hægri hönd), allt að ármótum þar sem Ólafsfjarðará rennur í Brúnastaðaá. Að ármótunum eru um 11,4 km frá upphafsstaðnum. Þarna þarf að vaða norður yfir fyrrnefndu ána og eftir það liggur leiðin meðfram Brúnastaðaá, alla leið niður á aðalveginn inn í Fljót, rétt norðan við félagsheimilið Ketilás.

Ferðasagan:  

Verður skráð að hlaupi loknu

Nesti og annar búnaður:

Verður skráð að hlaupi loknu

Lokaorð:

Verða skráð að hlaupi loknu

Helstu heimildir:

  • Ágústa Edwald o.fl. (2006): Fornleifaskráning í Ólafsfirði. Fornleifastofnun Íslands, FS320-04051, Reykjavík. https://skraning.minjastofnun.is/Verkefni_1502.pdf.
  • Björn Þór Ólafsson o.fl. (2007): Gönguleiðir á Tröllaskaga II; Fljót, Siglufjörður, Ólafsfjörður, Svarfaðardalur. Göngukort, Háskólinn á Hólum.