Staðsetning: Frá Unaósi á Héraði að Borg í Njarðvík
Hnattstaða:
Upphaf: 0,00 km ( 16 m), N65°34,54' - V14°02,16'
Stapavík (gatnamót): 4,45 km ( 63 m), N65°35,89' - V13°58,37'
Gönguskarð: 6,60 km (415 m), N65°35,43' - V13°56,38'
Göngudalsá: 8,35 km (180 m), N65°34,87' - V13°55,35'
Lok: 10,57 km ( 10 m), N65°34,40' - V13°53,56'
Hæð y. sjó: 16 m við upphaf, 415 m hæst, 10 m við lok
Samanlögð hækkun: 452 m
Vegalengd: 10,57 km
Tími: 1:44:39 klst.
Meðalhraði: 6,06 km/klst (9:54 mín/km)
Dags.: Sunnudag 13. júlí 2025, kl. 10:54
Hlaupafélagar: Engir
Fróðleikur um leiðina:
Leiðin um Gönguskarð var aðalleiðin af utanverðu Héraði yfir í Njarðvík allt þar til bílvegurinn yfir Vatnsskarð eystra var opnaður árið 1955. Gönguskarð var skráð sem hluti af Úthéraðsvegi á vegaskrá Vegamálastjórnarinnar 1933. Hins vegar hefur aldrei verið bífært um skarðið, þó að vitað sé um jeppa sem fór þar yfir árið 1946. Hlaupaleiðin um skarðið er greiðfær og liggur að miklu leyti eftir greinilegum reiðvegi.
Hlaupið hefst á bílastæði drjúgan spöl neðan við bæinn að Unaósi, rétt þar sem ekið er af láglendinu upp á Vatnsskarð. Við bílastæðið er gönguleiðaskilti sem vísar leiðina út í Stapavík. Fyrstu kílómetrana er hlaupið út með Selfljóti, fyrst í gegnum svonefndar Nafir og yfir Nautá (eftir u.þ.b. 1,7 km), sem rennur úr Vatnsskarðsvatni. Göngubrú er á Nautá og nokkrum öðrum litlum ám og lækjum sem renna þarna til sjávar. Áfram er svo haldið um Nautaskóg út að Eiðaveri rétt utan við Eiðaverslæk, en þangað eru um 3,2 km frá upphafsstaðnum.
Unaós er ysta jörð í Hjaltastaðaþinghá, kennd við Una danska Garðarsson sem nam land sunnan Lagarfljóts. Uni var sonur Garðars Svavarssonar sem á sínum tíma nefndi Ísland Garðarshólma. Uni ætlaði að leggja landið undir Harald Hárfagra Noregskonung en hafði engan stuðning nærsamfélagsins í þeim áformum. Unaós þótti kostajörð á meðan hlunnindi voru einhvers metin, enda var þar hægt að bæta afkomu sína með rekaviði, silungsveiðum, bjargfugli og varpi. Búið var á Unaósi til ársins 2017 þegar Þorsteinn Bergsson brá búi og flutti til Egilsstaða. Þorsteinn er vel þekktur sem sauðfjárbóndi, þátttakandi í spurningakeppnum og frambjóðandi flokka lengst til vinstri í Alþingiskosningum.
Á leiðinni út að Eiðaveri má sjá fallegar veghleðslur frá þeim tíma þegar kerruvegur var lagður þarna út ströndina árið 1906 í tengslum við verslunina á Krosshöfða. Í Eiðaveri hafði Margrét ríka á Eiðum í veri á 16. öld og þar var einnig verstöð til forna. Þar mótar fyrir rústum fimm sjóbúða og nausta, auk rústa beitarhúsa frá Unaósi sem munu hafa verið notuð fram til ársins 1913. Þarna er líka að finna nokkrar sjaldgæfar plöntutegundir, svo sem maríuvött, súrsmæru, gullsteinbrjót og brenninetlu.
Rétt utan við Eiðaver er hlaupið yfir Hvíteyrarlæk á enn einni göngubrúnni. Lækurinn dregur væntanlega nafn sitt af ljósbleiku líparitgrjóti sem er áberandi á þessum slóðum. Utan við Hvíteyrarlæk er farið yfir Hvíteyri og út á Krosshöfða við ósa Selfljóts. Þar var verslunarstaður á árunum 1902-1945 og var hann ýmist kallaður Óshöfn eða Höfði. Höfnin fékk löggildingu árið 1920, þó að hafnarskilyrði væru afleit. Strax á fyrsta áratugnum eftir löggildinguna varð lendingin reyndar ófær vegna sandburðar og eftir það var uppskipunarhöfn staðsett litlu utar með ströndinni í Stapavík. Uppskipun í Stapavík var hætt 1939 og eftir það var ýmist landað við Höfðann eða farið á bátum inn Selfljót að Heyskálabrú. Á meðan verslun var rekin á Krosshöfða ráku bændur sláturfé sitt þangað, m.a. yfir Gönguskarð, og fengu á móti vörur sem fluttar voru sjóleiðis. Verslunarreksturinn var í höndum Framtíðarinnar á Seyðisfirði framanaf en Kaupfélag Borgfirðinga var umsvifamest á Höfðanum á síðari hluta tímabilsins.
Rétt utan við Krosshöfða rennur Fossvíkurlækur til sjávar í Fossvík, þ.e.a.s. utan við ósa Selfljóts. Að læknum eru um 4,1 km frá bílastæðinu þar sem hlaupið hófst – og þarna sveigir leiðin til hægri upp holt. Uppi á holtinu eru vegamót, þar sem annað hvort er hægt að halda áfram og svo til vinstri niður í Stapavík, eða beygja til hægri og taka strikið beint upp brekkurnar með stefnu á Gönguskarð. Þangað liggur leiðin. Til að byrja með er best að halda sig innan við (hægra megin við) Stapavíkurlæk sem rennur þarna niður, enda er þar troðin gata. Utan við lækinn er hins vegar slóð eftir vélknúin farartæki áleiðis upp hlíðina.
Þegar komið er hærra upp í hlíðina er hlaupið út fyrir lækinn og haldið áfram þeim megin upp í Gönguskarð. Úr skarðinu er prýðisgott útsýni yfir Héraðsflóa og að Þerribjörgum norðan við flóann – og reyndar alla leið norður á Langanes. Þegar hlaupið er suður skarðið er Kerlingarfjall (631 m) framundan á vinstri hönd og Grjótfjall (697 m) til hægri. Veður geta orðið illskeytt í skarðinu og þar er snjóflóðahætta á vetrum. Örnefnið Stúlkubotnar sunnan við skarðið minnir á „afdrif tveggja vegvilltra ungmeyja er þar urðu til“, (HG, bls. 92).
Niðurleiðin úr skarðinu liggur meðfram Göngudalsá að vestanverðu (hægra megin), fyrst niður bratta skriðu og síðan eftir greinilegri götu um votlendi efst í Göngudal. Þegar u.þ.b. 8,4 km eru að baki er stiklað austur yfir ána og vegarslóðanum fylgt áfram niður á láglendið inn af Njarðvík. Þar með hlaupið niður með girðingu sem þarna er og síðan beygt til vinstri þegar komið er niður fyrir girðingarhornið. Þar liggur vegarslóðinn beinustu leið til sjávar, allt þar til komið er inn á heimreiðina að bæjunum í Njarðvík. Þar endar hlaupið.
Ofan við túnin í Njarðvík er Þorragarður, sem hlaðinn var úr torfi rétt fyrir árið 1000 að því er talið er. Upphaflega hefur garðurinn verið allt að 1,5 m á hæð og um 1.400 m langur, en nú stendur eftir um 900 m kafli. Þorragarðs er getið í Gunnars þætti Þiðrandabana og má ráða af sögunni að þetta hafi verið hestagirðing að þess tíma hætti. Líklegt er að Ásbjörn vegghamar hafi hlaðið garðinn. Hann var mikill verkmaður en ekki að sama skapi forsjáll í fjármálum. Hann var með öðrum orðum „óskuldvar“ og „keypti það margt er honum þótti girnilegt“, (BH, bls. 2136). Innheimta skuldanna fór síðar úr böndunum og kostaði nokkur mannslíf. Þorragarður endar ofan við bæinn Hlíðartún.
Ferðasagan:
Ferðasöguna má að mestu leyti lesa úr myndum og myndatextum í þar til gerðu myndasafni á Facebooksíðu Fjallvegahlaupaverkefnisins.
Lokaorð:
Gönguskarð er úrvals fjallvegahlaupaleið við flestra hæfi, auðrötuð með miklu útsýni og náttúrufegurð. Uppi í skarðinu eru brattir kaflar, en allt er þetta þó greiðfarið og þægilegt, sérstaklega í björtu og fögru veðri.
Helstu heimildir:
- Borgarfjörður eystri.is (á.á): Njarðvík.
https://www.borgarfjordureystri.is/ferdathjonusta/stiklad-um-viknaslodir/njardvik - Bragi Halldórsson o.fl. (ritstj.) (1986): Gunnars þáttur Þiðrandabana. Í „Íslendingasögur og þættir. Síðara bindi“, (bls. 2135-2144). Svart á hvítu, Reykjavík.
- Ferðafélag Fljótsdalshéraðs (2016): Um Stapavík.
http://www.ferdaf.is/index.php/is/itarefni/213-stapavik - Fljótsdalshérað (á.á): Náttúrumæraskrá Fljótsdalshéraðs.
http://vefur.alta.is/nms/?m=t&t1=1&t2=1&t3=0 - Helgi M. Arngrímsson o.fl. (2007): Víknaslóðir. Gönguleiðir á Austurlandi 1. Gönguleiðakort. Ferðamálahópurinn Borgarfirði eystri.
- Hjörleifur Guttormsson (2008): Úthérað ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og Loðmundarfirði. Árbók Ferðafélags Íslands. Ferðafélag Íslands, Reykjavík.
- Nat.is (á.á): Gönguleiðir á Austurlandi. Víknaslóðir. 15.
https://www.nat.is/gonguleidirisl/gonguleidir_viknaslodir15.htm - Vegamálastjórnin (1933). Helztu vegalengdir á Íslandi.